- Chicago! - 29 Jún 2009
-
Spegilmynd af okkur í Bauninni í Millennium Park í Chicago.


-
Jóhanna
2 svör
- Komin heim frá Florida og máltakan - 28 Maí 2009
-
Við komum heim frá Florida í fyrradag. Það var alveg æðislegt hjá okkur, Birna og Jón dekruðu alveg við okkur og við nutum þess að vera sama ótengd netinu. Við náðum að gera heilan heilling og líka ekki neitt. Við fórum í Everglades þjóðgarðinn, og keyrðum niður Florida Keys eyjaklasann, og silgdum út á kóralrifin, kíktum á Miami Beach, í Bal Harbour kringluna - sem er eins og að ganga í gegnum Vanity Fair auglýsingasíðurnar -, kíktum líka í hafnarmollið - fyrir venjulegt fólk - í Miami og fengum rosalega góðan kúbverskan mat.
Núna erum við að pakka og pakka en við höldum til Chicago á sunnudaginn. Það er sko sannarlega ekki skemmtilegt að flytja!
Það er skemmtilega að hlusta á Grétu Björgu núna, hún er farin að tala heilmikið. Það er alveg einstaklega krúttlegt að heyra blönduðu ísl-enskuna hennar, við höfum til dæmist heyrt hana segja mine á og this is skór.
-
Jóhanna
5 svör
- Seinasta vikan - 11 Maí 2009
-
Núna er seinasta vikan hjá Grétu Björgu á Rainbow´s End leikskólanum. Ég verð að viðurkenna að ég er pínulítið kvíðin fyrir hennar hönd enda hefur henni liðið svo ofsalega vel þarna. Til dæmis þarf maður bara að spyrja hana hvort við eigum að fara að hitta Miss Diane, Miss Michelle og Miss Katie (fóstrurnar) og Daphne, Brady og Claire (krakkana) og þá stekkur hún fram úr rúminu á morgnana. Mig grunar líka að Daphne eigi eftir að sakna Grétu Bjargar, hún hreinlega dýrkar Grétu Björgu. Mig grunar að það hafi eitthvað með það að gera að Daphne er 2,5 mánuðum yngri en Gréta Björg svo að hún fann mikið öryggi í henni þegar hún flutti niður til stóru krakkanna enda þekkti hún hana frá því í smábarnaherberginu.
-
Jóhanna
2 svör
- Útskrifuð - 08 Maí 2009
-
Það er margt búið að gerast síðan síðast en bloggið hefur verið eitthvað leiðinlegt svo ekkert hefur verið hægt að skrifa.
Mamma og pabbi komu til að vera viðstödd útskriftina mína. Jup, ég náði og er orðin Dr. Jakobsdóttir og mun auðvitað ekki svara neinu öðru núna ;-) Það var auðvitað yndislegt að hafa þau hjá okkur, við gerðum nú lítið annað en að vera sama og Gréta Björg er enn að kalla afa afa og þegar við segjum henni að amma og afi séu farin til Íslands segir hún vúve fyrir flugvél. Við erum nefnilega búin að vera að segja henni að amma og afi hafi farið til Íslands í flugvél. Annars er orðaforðinn orðin heilmikill og hún virðist greina vel á milli ensku og íslensku en ruglast stundum. Eitt af nýjastu orðunum er shoe upp á enskuna en hún segir líka skór. Svo er hún byrjuð að telja, smá ýkjur, en við sáum mann með tvö hunda í gær og spurðum hvort við ættum að telja þá og þá segir mín bara ei tei og bendir með vísifingri.
Daginn eftir að mamma og pabbi héldu aftur til Íslands fór ég til Kaliforníu í boði Roche. Roche var með innanhús ráðstefnu og leiðbeinandanum mínum var boðið en hann fékk þá til að bjóða mér í staðinn. Þetta var heilmikil lífsreynsla og skemmtilegir fyrirlestrar.
Þarnæstu helgi útskrifast svo Palli og þá koma amma Birna og afi Jón svo að Gréta Björg ætti að fá ömmu-og-afa þörfinni fullnægt aftur. Henni finnst svo voðalega kósý að vakna á morgnana og labba fram og skríða upp í til ömmu og afa.
-
Jóhanna
6 svör
- 18 mánaða skoðun og Gréta frænka farin - 14 Apr 2009
-
Gréta Björg varð 18 mánaða um þarsíðustu helgi og við fórum til læknisins í dag. Gréta Björg er orðin 83. sm löng og rétt rúm 9.7 kg. Hún hefur hægt svolítið á sér í þyngdinni en það eru nú alltaf dálítið skekkjumörk á þessum mælingum. Læknirinn sagði að hún væri ábyggilega bara að komast á kúrfuna sína og ætti eftir að vera svona í nettari kanntinum eins og báðir foreldrarnir. Það var engin sprauta í þetta sinn heldur aðeins spurningar um þroska og svo spurningarpróf fyrir einhverfu. Gréta Björg hefur orðið heilmikinn orðaforða og er fljót að taka upp ný orð.
Gréta systir fór í gær. Gréta Björg saknar frænku sinnar og leitaði heilmikið að henni bæði í gærkvöldi og í morgun og kallaði Gega Gega. Frænkurnar munu hittast aftur í ágúst í tilefni af brúðkaupi Grétu og Gumma. Það verður sko gaman.
-
Jóhanna
2 svör
- Chicago hérna komum við - 10 Apr 2009
-
Við erum sem sagt á leið til Chicago. Það er margt framundan hjá okkur núna. Ég var með vörnina mína 1. apríl og stóðst. Palla vörn verður 21. apríl. Gréta systir er hjá okkur núna og Gréta Björg dýrkar alveg frænku sína. Hún er búin að læra að segja nafnið sitt þegar hún talar um Grétu frænku en ekki um sjálfa sig.
Gréta verður hjá okkur fram á mánudag, mamma og pabbi koma tveimur dögum eftir vörnina hjá Palla og verða við útskriftina mína í lok apríl. Ég fer svo til Kaliforínu og verð með fyrirlestur fyrir Roche. Birna og Jón, tengdaforeldrar, koma svo til okkar um miðjan maí og verða viðstödd útskrift Palla. Við förum svo með þeim í vikufrí til Florida. Stuttu eftir að þau fara koma mamma og pabbi aftur og hjálpa okkar að flytja til Chicago. Síðan höldum við öll saman til Ísland 11. júní og við Palli og Gréta Björg förum svo aftur til Bandaríkjanna þann 23. Ég byrja svo að vinna 1. júlí og þá byrjar Gréta Björg líka hjá dagmömmu.
Palli var í Chicago síðasta föstudag og hitti dagmömmuna og skoðaði íbúðir og fann eina sem okkur leist vel á en hún er þriggja svenfiherbergja íbúð, með parketi, uppþvottavél og örbylgjuofni í eldhúsinu og þvottavél og þurrkara inni í íbúðinni. Það verður sko nóg pláss fyrir gesti í þessari íbúð. Hérna eru nokkrar myndir og hérna eru teikningar.
-
Jóhanna
3 svör
- Litla krúttan! - 17 Mar 2009
-

-
Jóhanna
6 svör
- Loksins svaf mamman vel - 23 Feb 2009
-
Gréta Björg er ekki eitt af þessum börnum sem að sefur alla nóttina og hefur aldrei verið. Ég held ég geti talið það á fingrum annarrar handar hversu oft hún hefur sofið alla nóttina. Við höfum hins vegar ekki verið að reyna að pína hana til þess heldur. Undanfarna viku hefur hún hins vegar sofið til 6 á morgnana. Áður rumskaði hún alltaf á milli hálffimm og fimm og fékk þá að súpa. En þrátt fyrir að daman rumski ekki fyrr en um sex núna þá hef ég verið að vakna klukkan fimm og legið andvaka, þar til ég er næstum að sofna þá rumskar hún um sex. Ég er því búin að vera með dúndrandi hausverk í rúma viku þar til í morgun þegar ég vaknaði ekki á undan Grétu Björgu. Núna vona ég bara daman haldi áfram að sofa svona vel.
-
Jóhanna
Eitt svar
- Þreytt á að bíða en margt til að hlakka til - 20 Feb 2009
-
Veit ekki alveg hvað ég á að skrifa, en það er nú ekki hægt að hafa bara eina færslu í febrúar. Er það? Ég sendi uppkast að ritgerðinni minni til leiðbeinandan míns í fyrradag. Það vantaði reyndar einn kafla í uppkastið en sá kafli verður nákvæmlega eins og nýjasti papprírinn okkar - ég þarf bara að koma honum inn í LaTex. Hugsanlega bæti ég smá við seinasta kaflann. Síðan fær nefndin mín næsta uppkast í byrjun mars og á að skila mér athugasemdum til baka um 20. mars. Vörnin verður svo 1. apríl og vona ég að eftir það verði ekki mikið af athugasemdum.
Proposalið gekk rosalega vel hjá Palla, fullt af spurningum en engar athugasemdir. Hann ætti því að komast létt í gegnum vörnina. Hann er búin að gera svo mikið. Þegar Gréta Björg fæddist var hann að snurfusa fyrsta pappírinn sinn og er núna kominn með einn í viðbót, eitt preprint og þrjá sem verða að preprint á næstu vikum. Ekki er ég búin að afkasta svona miklu á þessum tíma.
Gréta systir kemur svo til okkar 3. apríl, mamma og pabbi í lok apríl og Birna og Jón tengdaforeldrar um miðjan maí. Við förum stefnum líka á viku afslöppun með þeim í Florida. Síðan flytjum við í bryjun júní og þá koma mamma og pabbi aftur. Ég byrja svo væntanlega í nýju vinnunni 1. júlí og Palli í lok ágúst. Það er sem sagt til margs að hlakka.
Það er bara verst að við vitum ekkert hvert við erum að fara. Það er nú kannski ekki alveg satt, það er annaðhvort Chicago, Philadelphia, eða Ann Arbor. Líklegast Chicago, því Ann Arbor og Philadelphia vilja svar í næstu viku. Við þurfum að fara að ákveða okkur því ég þarf að fara að svara mínum tilboðum. Það voru svolítil mistök hjá okkur að ég byrjaði að sækja um á sama tíma og Palli. Við vissum bara ekki hverning þetta virkaði allt saman. Á mínu sviði eru einstaklingar með peninga og ráða því öllu og maður fær svar fljótt um tilboð eða ekki en hjá Palla eru það stærðfræðideildirnar svo að allt er í nefndum og tekur endalausan tíma því enginn ræður neinu og engin veit neitt. Ég er orðin svo þreytt og stressuð á að bíða.
-
Jóhanna
3 svör
- Mine Mine Mine og uss uss uss - 15 Feb 2009
-
Við Palli reynum eins og við getum að hlusta eftir ensku orðunum hjá Grétu Björgu og það fer ekki á milli mála að mín veit hvað hún vill. Ef hún sér eitthvað sem hún vill en nær ekki í er bara bent og sagt mine mine mine. Svo setur hún vísifingurinn fyrir munninn, leggst niður og segir uss uss uss þegar hún vill fara að fá sér blund. Þá leggst hún niður hvar sem hún er stödd.
Annars verður Palli með proposal á þriðjudaginn og ég er búin að negla niður dagsetningu fyrir doktorsvörnina. Það er barasta allt að bresta á.
-
Jóhanna
4 svör
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 1321 E. 57th St, Apt #2
- Chicago, IL 60637
Heimasími
- 773-752-3272
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527
